
Perlan mín! Hún hleypur nú um grænu engin á Hunda-himnaríki á milli þess sem hún vakir yfir sumarbústaðnum okkar. |
Þá er hún Perla mín sofnuð svefninum langa. Skrítið að hugsa til þess að þegar maður kemur heim eigi enginn Perla eftir að taka á móti manni og veita manni félagsskap þegar maður er einn heima. Enginn til að stara á mann og betla þegar maður er að borða og ekkert gelt til að láta mann vita þegar einhver er að koma að útidyrahurðinni. En svona er þetta víst...
Hún hefur nú fengið það hlutverk að fylgjast með sumarbústaðnum okkar þegar við erum ekki þar enda hinn fínasti varðhundur! Hvíl í friði Perla mín og takk fyrir mig! Þú ert æði!
Annars er Arizona veikin að verða meiri og meiri hjá mér! Gummi búinn að bóka sér ferð þangað út í lok mánaðarins og fullt af íslendingum þarna úti í augnablikinu. Held að það sé alveg málið að kíkja bara. Slá þessu upp í kæruleysi og njóta lífsins, leika sér og hafa það gott! Væri ekki leiðinlegt að kíkja í viku eða svo og fljúga aðeins. Kíkja kanski til Vegas eða eitthvað svoleiðis?! Ég er allavega alveg að deyja, mig langar svo aftur út!
Frívikan búin að vera frekar slöpp. Eiginlega búinn að vera kvefaður alla vikuna og gera ekki neitt! Ætlaði að fara að fljúga í gær, en auðvitað þurfti að koma leiðindar veður og ófært. Maður verður víst að sætta sig við það að maður býr á Íslandi. Verð samt að reyna að fara að fljúga við fyrsta tækifæri. Maður má ekki láta líða of langt á milli.
En jæja, ég læt þetta nægja í bili og kvittið svo fyrir ykkur þaddna!