Þá er maður bara kominn heim frá Lúx! Þvílíkt stuð þar á íslendingum! Fór með flugi frá Keflavík kl. 8 á föstudagsmorgun og var kominn út á hádegi, að staðartíma. Þar tóku á móti mér Baldur, sem hafði farið út á sunnudeginum tæpri viku áður, og Ásgeir en við félagarnir fengum að gista heima hjá honum.
Þegar heim til Ásgeirs var komið var byrjað á að skála í nokkrum bjórum, en Ásgeir og Baldur voru enn þunnir eftir kvöldið áður! Skildist á Baldri að hann væri búinn að vera í því frá því á sunnudeginum! Ekki slæmt það!
Þegar við vorum búnir að sötra nokkra öllara tók við skoðunarferð hjá mér um höfuðstöðvar Cargolux, fraktflugfélagsins þar úti. Það var algjör snilld! Fékk að skoða inn í eina 747 þotuna sem var þar í skoðun, sá flugherminn sem þeir eru með þar til að þjálfa flugmennina og skoðaði þjálfunarstöðina hjá þeim. Mjög gaman.
Eftir þennan 2 tíma skoðunartúr kom Ásgeir og pikkaði mig upp. Þegar við vorum á leiðinni heim fékk Ásgeir símtal. Breytt plan! Leiðin lá núna í Landsbankann í Lúxemborg í kokteil!
Ég get svo svarið það... þegar við gengum inn, í þeim casual fötum sem við vorum í, fannst mér eins og allt hefði þagnað. Allir upparnir sem voru þarna að gæða sér á kokteilum í sparifötunum og galakjólunum horfðu á okkur pésana þegar við gengum inn! Þetta var eins og að vera eini hvíti maðurinn í Harlem!
En þetta lagaðist fljótlega þegar þjónninn kom með troðinn bakka af drykkjum! Hvítvín, rauðvín, kampavín og bjór eins og maður gat í sig látið! Ég var ekki búinn að taka nema tvo til þrjá sopa af glasinu þegar þjónninn kom hlaupandi aftur að mér með flösku til að fylla á drykkinn! Þvílík snilld!
Eftir allnokkra drykki í boði Landsbankans lá leiðin í salinn þar sem þorrablótið átti að vera kvöldið eftir. Þar var að fara í gang generalprufa til að leggja lokahönd á leikritið sem átti að sýna á þorrablótinu. Í samkomuhúsinu, þar sem þorrablótið átti að vera, var verið að halda badmintonmót... í boði Jägermeister!!! Þar var semsagt barinn opinn fyrir þá sem voru að spila og þá sem voru að horfa á mótið, þannig að við skelltum okkur að sjálfsögðu á barinn!
Þegar generalprufunni var lokið var ákveðið að halda heim á leið til að reyna að ná einhverjum svefni þar sem stór dagur var framundan.
Daginn eftir vöknuðum við um hádegið og fórum í bæinn. Lá leið okkar í verslunarmiðstöðina í bænum þar sem við fengum okkur gott að eta og ljúfan öl með, spiluðum líka pool og höfðum það bara náðugt. Eftir það fórum við heim í sturtu og svo í smá fordrykk heima hjá Óskari, bróður Ásgeirs, svona áður en við fórum á þorrablótið.
Þorrablótið var svo algjör snilld. Um 400 manns voru á blótinu og taumlaus gleði hjá öllum. Hljómsveitin Á móti sól lék svo fyrir dansi og voru þeir alveg sérdeilis prýðilegir. Það var ekki að spyrja að því að það var mikið drukkið, borðað og dansað allt kvöldið og fram á nótt! Alveg brilliant kvöld, svo ekki sé nú meira sagt!
Daginn eftir var vaknað um kl. 13 og eldaði Ásta, systir Ásgeirs og Óskars, franskar og útbjó kokteilsósu fyrir okkur Baldur! Hinn fínasti þynnkumatur alveghreint!
Það má því segja að þessi frívika mín sé búin að vera með þeim betri, a.m.k. sem ég man eftir. Sérdeilis fínt að skreppa bara svona til útlanda í frívikunni! Svo er aldrei að vita nema maður nýti sér einhvað af þessum frímiðum sínum til að skreppa eitthvert út í næstu fríviku... kanski Köben eða London? Kemuru með?!
