
Fór og tók nokkrar myndir fyrir Halla þegar hann var að búa til konfektdesert fyrir galakvöld matreiðslumeistara eða eitthvað svoleiðis. |
Þið segið þetta, börnin góð!
Í ljósi athugasemda sem settar voru fram af yfirmanni mínum, honum Magnúsi Reyr, vil ég biðja alla þá sem þetta lesa að skrifa komment því til stuðnings að ég eigi að fá launahækkun til að geta keypt mér Volvo S40! Þennan lista mun ég svo prennta út og fara með til hans, máli mínu til stuðnings, og afhenta honum svo hann sjái það með eigin augum hvers virði ég virkilega er!

Annars var ég næstum búinn að skrifa undir kaupsamning á nýjum Volvo S40 í gær! Fór upp í Brimborg til að fá að prufukeyra kvikindið og fá upplýsingar um hversu mikið ég fengi fyrir Litlu Gulu Hænuna (LGH) ef ég mundi setja hana upp í. Sölumaðurinn bauð mér að taka einn Volvo-inn og keyra hann á meðan að LGH færi í söluskoðun. Ég tók því auðvitað um leið og fór að rúnta um á spánýjum Voffa og ÞVÍLÍKUR LÚXUS!!!
Mér leið eins og litlum prinsi sem hefði verið leystur undan þeim álögum að hafa verið froskur allt sitt líf! Þetta var algjör snilld! Ég bjóst við að fá að keyra um á bílnum í um klukkutíma, en endaði á því að rúnta um á bílnum í fjóra tíma! Það var því mjög erfitt að sætta sig við það að þurfa að setjast upp í LGH og keyra heim á leið eftir þessa upplifun! Því mátti litlu muna að ég hefði skrifað undir þegar ég kom til baka.

Life is like a box of choccolates; you never know what you are gonna get! |
En það má segja að skynsemin hafi ráðið ríkjum þegar ég settist niður og spjallaði við sölumanninn. Ég var búinn að vera að velta þessu öllu fyrir mér hvort þetta væri sniðugt og fékk að heyra allar útgáfur frá vinum og vandamönnum hversvegna ég ætti og ætti ekki að gera þetta. Það besta sem ég heyrði var að ég ætti bara að skella mér á þetta og finna mér svo konu sem ætti íbúð svo ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því... ég held að ég þurfi nú bara að byrja á því að finna mér konu, það kæmi svo bara í ljós hvort hún ætti íbúð eða ekki!

En ég komst að þeirri niðurstöðu að þetta er ekki rétta "move-ið" núna. Samt verð ég að losna við LGH! Í hvert skipti sem ég sé hana tengi ég við tímabil sem ég vil gleyma sem fyrst og því löngu kominn tími á að klippa á þann streng...
Ég fór svo í frívikunni til Flugfélagsins Ernirs til að athuga með atvinnumöguleika. Spjallaði í smá tíma við eiganda félagsins um heima og geima. Fór samt þaðan engu nær um hvort ég eigi möguleika á vinnu eða ekki.

Hann veit a.m.k. af mér núna. Ég verð bara að krossleggja fingur.
Fór svo sama kvöld í heimsókn til Gumma, vinar míns. Það endaði með því að við fórum út á lífið og skemmtum okkur prýðilega eins og von og vísa er þegar við erum annarsvegar, en það var kominn dágóður tími síðan við opnuðum okkur bjór saman!

Það má því segja að líf mitt sé snúið þessa dagana...
Jæja, ég læt þetta bull duga í bili... ekki gleyma að kvitta og styðja mig í launabaráttunni og líka bara ef þið hafið eitthvað sniðugt að segja!