Jæja, nú eru jólin búin og nýja árið að fara að taka við.
Hafði það nú svo sem ágætt um jólin, þrátt fyrir að vera að vinna í Kringlunni allan tíman. Fannst svona hálfpartinn eins og maður væri búinn að missa af jólunum... Samt var frábært að fá að vera með Afa og Ottó bróðir hans pabba svona yfir Aðfangadagskvöld (þar sem ég var að vinna allan Aðfangadag!

). Annars vorum við í góðu yfirlæti hér heima um kvöldið og borðuðum rosa góðan mat, þessi fína uxahalasúpa í forrétt, hamborgarhryggur aðsjálfsögðu í aðalrétt og þessi fíni möndlugrautur í eftirrétt og varð það hann Ottó frændi sem fékk möndluna í þetta sinn... ég fæ þessa bölvuðu möndlu aldrei! Mér er svo sem alveg sama, langar hvort sem er ekkert í þessa asnalegu möndlu!
Fékk líka rosa fínar gjafir frá vinum og vandamönnum og kann þeim öllum bestu þakkir fyrir, sérstaklega fyrir þessar heimasmíðuðu!
Þar sem ég var að vinna öll jólin fæ ég frí yfir áramótin! Þannig að nú er bara verið að gera sig kláran fyrir stuðið. Það er búið að plata mig til að fara til Þorlákshafnar og vera þar eftir miðnætti...!

Ég er ekkert allt of hrifinn af því verð ég að viðurkenna, en það er ekki mikið annað í boði hérna á höfuðborgarsvæðinu þannig að í augnablikinu er þetta besti kosturinn. Þið sem eruð með betra plan látið mig vita, þið hin sem vitið ekkert hvað þið ætlið að gera á gamlárs, getið sem sagt bara komið með mér til Þorlákshafnar og haldið mér og öðrum félagsskap þar!

Það er heldur betur búið að fjárfesta í flugeldum! Steini fékk náttlega æðiskast eins og venjulega! Þannig að við getum heldur betur sprengt allt í tætlur þarna á Þorlákshöfn!

Untill next time...